SUMAR-KÖRFUÆFINGAR Í KEFLAVÍK
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur ákveðið að halda úti reglulegum æfingum fyrir yngri sem eldri leikmenn í sumar. Sigurður Ingimundarson, þjálfari meistaraflokks Keflvíkinga, annast þjálfun og æfingagjald verður kr. 1.500 á mánuði. Dagskrá æfinga er eftirfarandi: Mánudaga: kl. 11-12 Ellefu ára og yngri kl. 12-13 Tólf til 14 ára kl. 16-19 14-16 ára kl. 19-21 Meistarafl. karla Þriðjudaga: kl. 18:30-20 M.fl. kvenna kl. 20-21:30 1. flokkur karla Miðvikudaga: kl. 11-13 Yngri flokkar kl. 16-17:30 Yngri flokkar kl. 17:30-19 Fimmtán ára stúlkur og piltar kl. 19-21 M.flokkur karla Fimmtudaga: kl. 19-20:30 M.fl.kvenna Föstudaga: kl. 11-13 Yngri flokkar kl. 16-18 Yngri flokkar kl. 18-20 M.flokkur karla.Stjórn deildarinnar leggur áherslu á að körfuknattleiksmenn mæti vel á meðan reynsla er að fást á verkefnið því hætta er á að æfingar falli niður verði aðsókn slök. Æfingar hófust miðvikudaginn 2. júní nk.