Bygg
Bygg

Íþróttir

Suðurnesjamenn á meðal þeirra bestu
Laugardagur 17. desember 2011 kl. 05:04

Suðurnesjamenn á meðal þeirra bestu

Körfuknattleiksfólk ársins var heiðrað í gær, og þar á meðal voru að sjálfsögðu Suðurnesjamenn eins og endranær. Körfuknattleikskona ársins var valin Helena Sverrisdóttir en í öðru og þriðja sæti voru Suðurnesjakonurnar Margrét Kara Sturludóttir og Birna Valgarðsdóttir. Margrét Kara leikur með KR þessa stundina en Birna er máttarstólpi hjá tvöföldum meisturum Keflavíkur eins og flestir vita.

Hjá körlunum var Suðurnesjamaðurinn Logi Gunnarsson meðal þeirra 6 leikmanna sem fengu atkvæði en Jakob Sigurðarson var valinn körfuknattleiksmaður ársins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn