Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Suðurnesjaliðin geta komist áfram í kvöld
Föstudagur 24. mars 2017 kl. 09:57

Suðurnesjaliðin geta komist áfram í kvöld

Keflvíkingar ekki upp úr 8-liða úrslitum síðan árið 2011

Úrslitakeppni karla í körfubolta rúllar áfram í kvöld með tveimur rosalegum leikjum þar sem Suðurnesjaliðin Grindavík og Keflavík geta tryggt sér sæti í undanúrslitum. Keflvíkingar hafa ekki farið upp úr 8-liða úrslitum síðan árið 2011, en Grindvíkingar ekki síðan 2014. 

Í Sláturhúsinu í Keflavík taka særðir heimamenn á móti kokhraustum Tindastólsmönnum sem tóku Keflvíkinga í bakaríkið í Síkinu á miðvikudag. Keflvíkingar leiða 2-1 í einvíginu og geta með sigri komist í undanúrslit í fyrsta sinn í sex ár. Síðast komust Keflvíkingar upp úr 8-liða úrslitum eftir 2-1 sigur á ÍR.

Public deli
Public deli

2012 töpuðu Keflvíkingar 2-1 gegn Stjörnunni í 8-liða
2013 töpuðu Keflvíkingar 2-1 gegn Stjörnunni í 8-liða
2014 töpuðu Keflvíkingar 3-0 gegn Stjörnunni í 8-liða
2015 töpuðu Keflvíkingar 3-2 gegn Haukum í 8-liða
2016 töpuðu Keflvíkingar 3-1 gegn Tindastól í 8-liða

Í Þorlákshöfn mæta Grindvíkingar í  heimsókn en þeir leiða 2-1 í einvíginu og geta því tryggt sig áfram með sigri. Liðin hafa hingað til sigrað alla heimaleikina í rimmunni og því spurning hvort Grindvíkingum takist að láta af þeirri venju í kvöld. Grindvíkingar urðu Íslandsmeistarar árið 2012 og 2013 og fóru alla leið í úrslit 2014 en töpuðu gegn KR. Þreföldu meistararnir hafa svo orðið á vegi Grindvíkinga síðustu tvö ár líka.

2012 unnu Grindvíkingar 3-1 gegn Þór Þ. í úrslitum
2013 unnu Grindvíkingar 3-2 gegn Stjörnunni í úrslitum
2014  töpuðu Grindvíkingar 3-1 gegn KR í úrslitum
2015 töpuðu Grindvíkingar 3-0 gegn KR í 8-liða
2016 töpuðu Grindvíkingar 3-0 gegn KR í 8-liða

Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:15