Suðurnesjaliðin gera það gott í knattspyrnunni
- Farið að síga á seinni hluta fótboltasumarsins
Knattspyrnuliðin á Suðurnesjum eru flest öll að gera það gott í deildum sínum þetta sumarið. Nú er farið að síga á seinni hluta mótanna og úrslit fara senn að ráðast.
Grindvíkingar eru í mikilli baráttu um Evrópusæti í Pepsi-deildinni og munu að öllum líkindum eiga markahæsta leikmann Pepsi-deildarinnar, Andra Rúnar Bjarnason, sem hefur farið á kostum með Grindvíkingum í sumar og skorað hvert glæsimarkið á fætur öðru.
Keflvíkingar eru í efsta sæti Inkasso deildarinnar en Fylkir fylgir fast á hæla þeirra í öðru sætinu og því verður spennandi að fylgjast með síðustu leikjunum. Í annarri deildinni verma Njarðvíkingar 1. sætið og eru sem stendur með þriggja stiga forskot á næsta lið en þar á eftir í þriðja sætinu koma Víðismenn sem eru aðeins fjórum stigum á eftir Njarðvíkingum. Þróttarar frá Vogum eru í öðru sæti þriðju deildar og hafa þeir unnið þrjá leiki í röð og eru greinilega á blússandi siglingu.
Reynismenn hafa verið í töluverðu basli í sumar í þriðju deildinni og eru í fallbaráttu. Þess má einnig geta að lið Grindavíkur GG sló stigamet sitt í fjórðu deildinni þar sem þeir enduðu í þriðja neðsta sætinu með sautján stig.
Grindavíkurstúlkur eru sem stendur í sjöunda sæti Pepsi-deildar kvenna og gerðu meðal annars jafntefli við Íslandsmeistara Stjörnunnar núna í ágúst.
Keflavíkurstúlkur eru í fjórða sæti fyrstu deildar kvenna og eru þremur stigum fyrir ofan næsta lið.
Hér má svo sjá næstu leiki Suðurnesjaliðanna:
Pepsí-deild karla:
FH - Grindavík 10. september kl. 17:00 í Kaplakrika
Inkasso- deild karla:
Þór - Kefavík í kvöld ( 30. ágúst) a Þórsvelli kl. 17:30
2. deild:
Njarðvík - Vestri , 2. september á Njarðtaksvelli kl. 13:00
Tindastól - Víðir, 2. september á Sauðarkróksvelli kl. 14:00
3. deild:
Þróttur - KFG Vogabæjarvöllur, 1. september kl. 18:00
KF - Reynir Ólafsfjarðarvöllur, 3. september kl. 14:00
Pepsi deild kvenna:
Grindavík- Valur, Grindavíkurvöllur. Í kvöld (30.ágúst) kl 18:00
1. deild kvenna:
Þróttur- Keflavík, Eimskipsvöllurinn. 1.september kl. 19:15