HSS
HSS

Íþróttir

Suðurnesjaliðin fengu útileiki í bikarnum
Föstudagur 4. júlí 2008 kl. 12:58

Suðurnesjaliðin fengu útileiki í bikarnum

Öll þrjú Suðurnesjaliðin fengu útileiki í Visa-bikarnum en dregið var í 8-liða úrslit núna í hádeginu. Í karlaflokki fara Keflvíkingar í Kópavoginn og mæta þar Breiðablik. Grindvíkingar mæta KR í Vesturbænum en þessi sömu lið mættust í úrslitum bikarsins árið 1994 þegar KR hafði betur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Í Visa-bikar kvenna mætir Keflvík Val á útivelli og verður þar við ramman reip að draga fyrir Keflavíkurstúlkur.

Drátturinn í karlaflokki:
Fjölnir - Víkingur R.
Breiðablik - Keflavík
Haukar - Fylkir
KR - Grindavík

Drátturinn í kvennaflokki:
Þór/KA - Breiðablik
Stjarnan - ÍA
Fylkir - KR
Valur - Keflavík

VF-Mynd/Þorgils