Suðurnesjaliðin áfram í bikarnum
Fótboltavertíðin formlega hafin
Borgunarbikarkeppnin í knattspyrnu er hafin og því mætti segja að knattspyrnu vertíðin sé formlega farin af stað utanhúss. Suðurnesjaliðin voru mörg hver í eldlínunni í karlaboltanum um helgina og röðuðu inn mörkum.
Óli Baldur Bjarnason sem nýlega hætti að leika með Grindvíkingum, sýndi að hann á enn fullt inni þegar hann gerði fimm mörk fyrir GG í 7-1 sigri liðsins. Fleiri voru á markaskónum en þeir Theodór Guðni Halldórsson og Sigurður Þór Hallgrímsson skoruðu báðir þrennu fyrir Njarðvík í stórsigri. Devonte Daryll Delroy Small gerði þrennu og Reynir Þór Valsson tvö mörk í 7-1 sigri Reynismanna gegn Kórdrengjum.
Víðismenn fengu tvö sjálfsmörk gefins frá andstæðingum sínum en þeir Milan Tasic og Aleksander Stojkovic gerðu sitt markið hvor í öruggum sigri. Þróttarar unnu svo góðan sigur á KV, 0-2 þar sem Elvar Freyr Arnþórsson og Andri Björn Sigurðsson skoruðu mörkin.
Stál-úlfur - Njarðvík: 1-6
Reynir S. - Kórdrengir: 7-1
GG - Snæfell: 7-1
Víðir - Midas: 4-1
KV - Þróttur Vogum: 0-2