Suðurnesjakylfingar á besta skori - myndasafn úr Leirunni
Suðurnesjakylfingar léku á besta skorinu í fjórða vormóti Golfklúbbs Suðurnesja sem fram fór í Leirunni í gær. Örn Ævar Hjartarson og Ævar Pétursson léku á 73 höggum eða einu yfir pari. Örn vann sigur á vormóti 3 um síðustu helgi. Í þriðja sæti varð brottfluttir Keflvíkingurinn, Helgi Birkir Þórisson en hann var á 75 höggum, 3 yfir pari.
Rúnar Már Jónatansson GR og Þorsteinn Böðvarsson voru efstir og jafnir í punktakeppninni og fékk Rúnar efsta sætið. Fjórir kylfingar voru jafnir í 3.-6. sæti með 38 punkta, Guðjón Ragnar Svavarsson GSG, Rafn Halldórsson GK, Ævar Pétursson GS og Felix Valsson GKG.
Eitthundrað fimmtíu og fimm þátttakendur mættu í fjórða vormót GS en þátttaka í vormótin var mjög góð en alls mættu á sjötta hundrað kylfingar í þau. Þetta hefur komið sér vel fyrir klúbbinn að fá svo mikla þátttöku áður en sumarið gengur í garð.
Kylfingarnir sem fréttamaður VF hitti í Leirunni í gær voru mjög ánægðir með völlinn en eins og fyrr í vetur og vor var leikið á sumarflatir Hólmsvallar.
Þessar myndir voru teknar á mótinu. Smellið hér til að sjá fleiri í ljósmyndasafni kylfings.
--