Suðurnesjakrakkar stóðu sig vel á KEA-mótinu
Um síðustu helgi fór fram hið árlega KEA-skyrmóti Breiðabliks og voru krakkar frá Suðurnesjum að sjálfsögðu á meðal keppenda. Þetta var í áttunda sinn sem þetta mót hefur verið haldið. Mótið er aðallega hugsað fyrir leikmenn 10 ára og yngri en í þetta sinn var einnig leikið í 11 ára flokki. Mótið er í anda þeirrar hefðar sem myndast hefur á Íslandi um svona mót, þ.e. stig eru ekki talin, enginn sigrar í leikjunum og um leið í mótinu, leikreglur eru aðlagaðar að getu leikmanna hverju sinni og leikgleðin ræður ríkjum.
Um 500 leikmenn tóku þátt í mótinu frá eftirfarandi félögum: Breiðablik, Keflavík, Njarðvík, Haukum, Snæfelli, Fjölni, Reyni, Ármann/Þrótti og KR. Nokkur félög sendu um og yfir 10 lið á mótið og greinilega mikill uppgangur í minniboltastarfi þeirra félaga. Sérstaklega gaman var að sjá fjölda leikmanna í byrjandaflokknum (5-7 ára) á mótinu og hvaða tökum þessir leikmenn hafa náð á íþróttinni. Á mótinu mátti sjá mörg mjög þjálfuð lið og marga skemmtilega leikmenn. Mikla athygli vakti ein 9 ára stelpa frá Njarðvík sem æft hefur körfu í fimm ár.
Næsta mót í þessari mótröð fyrir yngri leikmennina í minniboltanum er Samkaupsmótið í Reykjanesbæ. Það verður haldið helgina 5.-6. mars. UMFN og Keflavík er byrjuð á því að kynna þetta mót. Þátttökutilkynningum skal skilað inn fyrir 25. febrúar næstkomandi.
Texti af kki.is
Myndir af heimasíðu mótsins