Suðurnesjafólk í þriggja stiga keppni Stjörnuleiksins
Þegar Stjörnuleikirnir í körfubolta fara fram er þar jafnan fastur liður að helstu skyttur landsins reyni fyrir sér í þriggja stiga keppni. Í ár er engin undantekning þar á og liggur nú ljóst fyrir hvaða leikmenn ætla að spreyta sig.
Hjá körlunum eru átta keppendur og þar af tveir frá Suðurnesjum. Þeir Elvar Már Friðriksson (Njarðvík) og Guðmundur Jónsson (Keflavík) verða fulltrúar Suðurnesjanna að þessu sinni en aðra keppendur má sjá hér.
Hjá konunum eru einnig tvær Suðurnesjakonur meðal keppenda en það eru þær Lovísa Falsdóttir (Keflavík) og Sara Dögg Margeirsdóttir (Njarðvík). Aðra keppendur má sjá hér.
Stjörnuleikshátíð KKÍ fer fram þann 25. janúar í Schenkerhöllinni að Ásvöllum.