Íþróttir

Styrmir frá keppni í 8 til 12 vikur
Fimmtudagur 22. febrúar 2018 kl. 10:24

Styrmir frá keppni í 8 til 12 vikur

Knattspyrnumaðurinn og leikmaður Njarðvíkur, Styrmir Gauti Fjeldsted meiddist á æfingu fyrir rúmri viku og nú er komið í ljós að innra liðband á hnénu hjá honum er slitið en allt annað heilt. Ekki er ljóst á þessu stigi hvort hann fari í aðgerð eða þetta verði látið gróa að sjálfu sér. Það er ljóst að hann verður frá keppni og æfingum í átta til tólf vikur en Styrmir hefur verið lykilmaður í vörninni hjá Njarðvík síðustu ár.

Annar lykilmaður frá því í fyrrasumar, Magnús Þór Magnússon er einnig að ná sér eftir að hafa farið í aðgerð vegna kviðslits og Sports hemia sem hefur háð honum. Magnús Þór kláraði nám í Bandaríkjunum fyrir jólin og er komin heim og hefur æfingar fljótlega með Njarðvík.

Public deli
Public deli