Stuðningsmenn hittast fyrir toppslag FH og Keflavíkur
Topplið Landabankadeildarinnar, FH og Keflavík, mætast í Kaplakrika í kvöld og hefst leikurinn kl. 20.
Stuðningsmenn liðanna, Hafnarfjarðarmafían og Pumasveitin, munu hittast á Áttunni, samkomustað Hafnfirðinga að Trönuhrauni 10, um kl. 18 og hita upp raddbönd fyrir leikinn. Forsvarsmenn Pumasveitarinnar vilja hvetja alla Keflvíkinga til að mæta og skemmta sér í góðra vina hópi.