Stuðningsmenn Grindavíkur ekki sáttir með Guðjón Þórðar
„Þetta er ekki að sýna djörfung og dug Guðjón Þórðarson....og þetta er það sem við köllum hér meðal heiðarlegs fólks SKÍTA KARAKTER!!!,“ skrifar Gunnar Már Gunnarsson, einn af helstu stuðningsmönnum knattspyrnuliðs Grindavíkur á Facebook-síðu Stinningskalda, stuðningsmannafélags Grindavíkur.
Samkvæmt heimildum Víkurfrétta þá vilja Grindavíkingar losna við Guðjón úr starfi þjálfara liðsins. Hann stýrði liðinu til falls í haust og leikur liðið því í 1. deildinni á næsta ári. Af ummælum Gunnars Más að marka þá virðist sem að starfslok Guðjóns séu komin til lögfræðings.
„Ef maðurinn hefði komið almennilega fram í starfi sínu og við þau lið sem hann hefur samið við þá kannski þyrfti hann ekki alltaf að standa í þessu rugli. ... Það er ekki lengur hægt að semja við menn og treysta á heiðarleika þeirra, nú þurfa stjórnir knattspyrnufélaga að ráða lögfræðinga til að semja við þjálfara,“ segir ennfremur á stuðningsmannasíðu Stinningskalda.
Pistilinn má lesa í heild sinni með að smella hér og er hann nokkuð harðorður í garð Guðjóns.