Karlakórinn
Karlakórinn

Íþróttir

Strandarhlaupið endurvakið
Stígvélakastið verður væntanlega á sínum stað.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 23. febrúar 2024 kl. 06:07

Strandarhlaupið endurvakið

„Þetta er langstærsti viðburður sem Ungmennafélagið Þróttur hefur haldið og ég held að íbúar sveitarfélagsins megi vera stoltir af því að Vogar hafi orðið fyrir valinu til að halda Landsmót 50+,“ segir Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar í samtali við Víkurfréttir.

„Þetta er gríðarlega stórt verkefni og við stólum á að Vogabúar taki höndum saman til að gera mótið sem glæsilegast í alla staði – það hefur sýnt sig að samtakamátturinn hér í Vogum er mikill og góður þegar á þarf að halda og ekkert því til fyrirstöðu að Landsmót 50+ í sumar verði það flottasta frá upphafi,“ segir Marteinn og bætir við að veðurspáin lofi góðu meðan á mótinu standi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Keppt í pönnukökubakstri og brennó í Vogum

Fulltrúar UMFÍ, Ungmennafélagsins Þróttar Vogum og Sveitarfélagsins Voga skrifuðu í síðustu viku undir samning um Landsmót UMFÍ 50+ sem haldið verður í Vogum í sumar. Boðið verður upp á klassískar greinar, pönnukökubakstur, brennó og margt fleira. Búist er við fjölmennasta mótinu frá upphafi.

„Við erum búin að ákveða keppnisgreinar og ég get upplýst að keppni í pönnukökubakstri er aftur komin á dagskrá ásamt strandarhlaupi, keppni í félagsvist og brennó á Landsmóti UMFÍ 50+ þegar það verður haldið í Vogum í sumar,“ segir Petra Ruth Rúnarsdóttir, formaður Ungmennafélagsins Þróttar Vogum. Hún er jafnframt formaður framkvæmdanefndar mótsins sem verður haldið dagana 7. til 9. júní næstkomandi.

Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og viðburðum fyrir fimmtugt fólk og eldra sem allir snúast um að þátttakendur njóti samveru. Mótið er opið öllum sem verða 50 ára á árinu og þeim sem eldri eru. Ekki er krafa um að þátttakendur séu skráðir í íþróttafélag.

Framkvæmdanefndin á fundi í síðustu viku. Hér má sjá Ómar Braga Stefánsson, framkvæmdastjóra móta UMFÍ, Petru Ruth, formann Þróttar Vogum, Tinnu Hallgrímsdóttur, afþreyingastjóra mótsins, keppnisstjórarana Guðmund Stefán Gunnarsson, íþrótta- og tómstundarfulltrúa Sveitarfélagsins Voga, og Sólrúnu Ósk Árnadóttur. Þá eru einnig á myndinni Rósa Sigurjónsdóttir, svæðisstjórinn Jóhann Ingimar Hannesson og Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar Vogum, sem jafnframt sér um gistingu, veitingar og tjaldbúðir ásamt öryggisstjórn í félagi við Kristin Björgvinsson. Á myndina vantar Helgu Ragnarsdóttur.

Tónleikar í heimahúsum

Petra segir skipulag mótsins vera langt komið, boðið verður upp á klassískar greinar eins og ringó og golf, boccia, pútt, frjálsar og að sjálfsögðu stígvélakast ásamt mörgum fleirum. Til viðbótar verði kynningar á ýmsum greinum fyrir flesta aldurshópa. Þar á meðal verður spiluð félagsvist og lomber, sem eru vinsæl í Vogum og Grindavík.

„Við verðum líka með strandarhlaup sem var haldið í tengslum við Fjölskyldudaga hér áður fyrr. Það verður opin og skemmtileg grein sem kemur í stað götuhlaups,“ segir Petra. Hún bendir á að líka sé mikil eftirspurn eftir því að keppa í brennó, sem hópur kvenna æfi í Vogum.

„Við erum að vinna með svo margar hugmyndir og skoðum enn fleiri greinar og viðburði eins og tónleika og uppákomur í heimahúsum í Vogum á meðan mótinu stendur,“ segir Petra og bætir við að allt þetta bætist við skemmtikvöldið sem haldið verður á laugardegi mótsins. 

Í tengslum við fundinn skrifuðu Petra, Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, og Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóri sveitarfélagsins Voga, undir samning um mótið. UMFÍ hefur haldið Landsmót UMFÍ 50+ frá árinu 2011 og verður það nú í samstarfi við Þrótt Vogum og Sveitarfélagið Voga.

Bæjarstjórinn Gunnar Axel er afar spenntur fyrir mótinu og býst við mjög góðri aðsókn fólks frá Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu.

„Þetta gæti orðið fjölmennasta Landsmót UMFÍ 50+ frá upphafi enda margt í boði. Við munum taka vel á móti öllum,“ sagði hann.

Opnað verður fyrir skráningu á mótið í byrjun maí á umfi.is. Þar eru líka ítarlegari upplýsingar um Landmót UMFÍ 50+.

Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, Petra Ruth, formaður Ungmennafélags Þróttar Vogum, og bæjarstjórinn Gunnar Axel.

Ítarlegri upplýsingar veita:

Petra Ruth Rúnarsdóttir, formaður Ungmennafélagsins Þróttar, 659 0739.
Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar, 892 6789.
Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ, 898 1095.
Allar frekari upplýsingar og skráning fer fram á umfi.is.