Strandarhlaup Þróttar fer fram í þriðja sinn í dag
Þróttarar frá Vogum halda sitt árlega Strandarhlaup í dag en í fyrra tóku í kringum 80 hlauparar þátt í þessu glæsilega hlaupi. Þróttarar hafa lagt mikið upp með góða stemningu og að hlaupið sé í gegnum fallegt umhverfi hjá Stapanum og gamla veginn hjá Ströndinni. Hlaupið hét fyrstu tvö árin „Línuhlaup Þróttar“ og er þetta því í fimmta sinn sem Þróttarar halda hlaupið.
Samkvæmt Þrótturum eru glæsileg útdráttarverðlaun og hvetja þeir hlaupara og skokkara til að fjölmenna í Vogana.