STÓRTAP GEGN ÍS
				
				Grindavíkurstúlkum gengur erfiðlega að ná stöðugleika í leik liðsins og féll í vikunni illilega á heimavelli 37-60 gegn ÍS. Skotnýting liðsins var aðeins um 20%(11% í þriggja stiga skotum) sem rétt dugði til að ná hálfleikstölu Stúdína (37). Svanhildur Káradóttir stóð upp úr liði Grindavíkur, skoraði 12 stig, tók 11 fráköst og varði 2 skot.
				
	
				
					
						
					
					
						
					
				
				
				 								
			




 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				