Stórtap á heimavelli
Keflavíkurstúlkur guldu afhroð gegn Íslandsmeisturum Vals í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í gær, 11-0.
Ekki þarf að fjölyrða um gang leiksins, sem fór fram á Keflavíkurvelli, þar sem lokatölurnar segja sína sögu, en Valsstúlkur skoruðu fimm mörk í fyrri hálfleik og eftir frekar tíðindalitlar upphafsmínútur í seinni hálfleiks fóru Valsarar að bæta við mörkum jafnt og þétt síðasta hálftímann.
Keflavík er sem fyrr á botni deildarinnar, stigalausar eftir 8 leiki.
Keflavík er sem fyrr á botni deildarinnar, stigalausar eftir 8 leiki.