Bygg
Bygg

Íþróttir

Stórt tap gegn Litháen
Logi og félagar náðu sér alls ekki á strik gegn sterku liði Litháa.
Miðvikudagur 25. júlí 2012 kl. 09:33

Stórt tap gegn Litháen

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik tapaði fyrir landsliði Litháa 101-51 í vináttulandsleik ytra í gær en íslenska liðið er þar í æfinga- og keppnisferð. Litháen, sem leikur á Ólympíuleikunum sem hefjast í London í vikunni, hafði yfir í hálfleik 47-31 og vann að lokum 50 stiga sigur.

Hlynur Bæringsson var stigahæstur okkar manna 13 stig og Jón Arnór Stefánsson skoraði 12 stig. Að þessu sinni voru tveir Suðurnesjamenn með liðinu, en það eru þeir Logi Gunnarsson og Sigurður Gunnar Þorsteinsson. Næsta verkefni Íslands er fyrsti leikur liðsins í undankeppni Evrópumótsins gegn Serbum 14. ágúst í Laugardalshöll.

Bílakjarninn
Bílakjarninn