Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Stórsigur Keflvíkinga á Víkingi Ólafsvík
Joey Gibbs getur bara ekki hætt að skora! VF-mynd: Hilmar Bragi
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 19. ágúst 2020 kl. 21:28

Stórsigur Keflvíkinga á Víkingi Ólafsvík

Sjö mörk skoruð á Nettóvellinum í kvöld

Keflvíkingar héldu sigurgöngu sinni áfram þegar þeir tóku á móti Víkingi frá Ólafsvík í Lengjudeild karla í kvöld.

Leikurinn í kvöld var alger einstefna að marki gestanna, Keflvíkingar byrjuðu þó rólega en á 12. mínútu skoraði Ari Steinn Guðmundsson frábært mark eftir sendingu frá Davíð Snæ Jóhannssyni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Eftir markið var ekki aftur snúið og á 22. mínútu bætti ástralska markamaskínan Joey Gibbs við öðru marki. Aðeins þremur mínútum síðar skoraði Kian Williams þriðja mark Keflvíkinga og staðan 3:0 í hálfleik.

Í seinni hálfleik héldu heimamenn áfram að þjarma að gestunum, Gibbs skoraði sitt annað mark á 57, mínútu og var skipt út af skömmu síðar en hann hafði fengið að líta gult spjald í fyrri hálfleik.

Kian Williams skoraði einnig tvö í kvöld, það seinna á 68. mínútu, og kom Keflavík í 5:0.

Undir lok leiksins fengu Keflvíkingar dæmda vítaspyrnu þegar brotið var á Birni Boga Guðnasyni sem var við það að komast í gegn, Davíð Snær Jóhannsson fór á punktinn og skoraði sjötta og síðasta mark Keflvíkinga í kvöld.

Þegar komið var í uppbótartíma náðu Víkingar að skora eitt mark (90'+2) og lokatölur 7:1 stórsigur heimamanna.

Miklir yfirburðir

Það var eiginlega bara eitt lið á Nettóvellinum í kvöld. Yfirburðir Keflvíkinga voru miklir og eins og Ármann Örn Guðbjörnsson, sem lýsti leiknum á Fótbolti.net, komst svo skemmtilega að orði þegar hann skrifaði: „Í hvert einasta skipti sem Víkingar vinna boltann þá þarf ekki nema að telja upp í fimm þá eru þeir búnir að gefa boltann frá sér...“ þá er það lýsandi fyrir muninn á gæðum liðanna í kvöld.

Joey Gibbs heldur áfram að skora fyrir Keflavík og það eru ánægjulegar fréttir fyrir liðið að hann hefur framlengt samningi sínum við félagið út árið 2023.

Keflvíkingar eru nú einir efstir í Lengjudeildinni en Leiknir Reykjavík, sem var jafnt Keflavík að stigum, tapaði fyrir Vestra í kvöld. ÍBV er einu stigi á eftir Keflavík en ÍBV vann Aftureldingu í Eyjum.

Hilmar Bragi, ljósmyndari Víkurfrétta, var á leiknum eins og sjá má á meðfylgjandi myndasafni.

Keflavík - Víkingur Ó | Lengjudeild karla 19. ágúst 2020