Bygg
Bygg

Íþróttir

Stórsigur hjá Keflavík í Grafarvoginum
Miðvikudagur 27. ágúst 2008 kl. 13:05

Stórsigur hjá Keflavík í Grafarvoginum

Keflavík er komið langleiðina með að tryggja sér áframhaldandi veru í Landsbankadeild kvenna eftir stórsigur á Fjölni, 0-6 í gærkvöldi. Danka Podovac skoraði tvö mörk og þær Vesna Smiljkovic, Guðný Petra Þórðardóttir, og Inga Lára Jónsdóttir gerðu eitt mark hver. Sjötta markið var sjálfsmark. Með sigrinum er Keflavík komið í góða stöðu í deildinni með 15 stig þegar tveimur umferðum er ólokið. Keflavíkurstúlkur hafa hlotið sex stigum meira en HK/Víkingur sem er í fallsæti og því þarf Keflavík aðeins að hljóta eitt stig í næstu tveimur leikjum til að tryggja veru sína í deildinni.



VF-MYND/Inga: Keflavíkurstúlkur eru hér um bil búnar að tryggja sér áframhaldandi veru í Landsbankadeildinni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn