HSS
HSS

Íþróttir

Stórsigur Grindavíkur
Laugardagur 18. nóvember 2017 kl. 20:53

Stórsigur Grindavíkur

 Grindavík mætti Ármanni í 1. deild kvenna í körfu í dag og endaði leikurinn með stórsigri Grindavíkur 73-42.

Ungu stelpurnar í liði Grindavíkur stigu upp í dag og dreifðust stigin jafnt á liðið. Grindavík er  í öðru sæti 1. deildar kvenna en lið KR er á toppnum en lið Ármanns er á botni deildarinnar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Anna Ingunn Svansdóttir átti stórleik í liði Grindavíkur en hún skoraði 24 stig, Anna Margrét Lucic Jónsdóttir var með 13 stig, Embla Kristínardóttir var með 11 stig, 13 fráköst, 10 stoðsendingar og 5 varin skot, Thea ólafía Lucic Jónsdóttir var með 11 stig og 4 fráköst, Halla Emilía Garðarsdóttir var með 8 stig, Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir var með 4 stig og 7 fráköst og Emelía Ósk Grétarsdóttir var með 2 stig.