Stórsigur á Fjölni
Njarðvíkingar unnu stórsigur á Fjölni þegar liðin áttust við í 1. deild kvenna í körfubolta í gær. Munurinn varð á endanum 34 stig, 47:81 þar sem gestirnir frá Njarðvík höfðu yfirburði frá upphafi. Njarðvíkingar deildu stigaskorinu vel á milli sín og komust allir leikmenn á blað. Njarðvíkingar eru sem stendur í fjórða sæti deildarinnar með átta stig á meðan lið Skallagríms er taplaust á toppnum með 22 stig.
Tölfræði úr leiknum má sjá hér.