Bygg
Bygg

Íþróttir

Mánudagur 19. apríl 2004 kl. 17:30

Stormur í vatnsglasi

Sigurður Ingimundarson segir orð sín hafa verið oftúlkuð í umfjöllun Fréttablaðins í dag. Þar var því slegið upp að Sigurður hefði mikinn áhuga á því að þjálfa félagslið að nýju og hefði átt í óformlegum viðræðum við Grindavík.
Í samtali við Víkurfréttir sagðist hann hins vegar ekki hafa tekið endanlega ákvörðun um hvort hann snúi sér aftur að þjálfun á næsta ári. „Það gæti vel komið til þess, en það er langt í frá ákveðið,“ sagði Sigurður og bætir því við að ekkert lið hafi komið að tali við sig með formlegum hætti.
Bílakjarninn
Bílakjarninn