Stórleikur í Röstinni í kvöld
Í kvöld fer fram sannkallaður stórleikur í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Þá taka Grindvíkingar á móti Njarðvíkingum í Röstinni klukkan 19:15. Grindvíkingar eru sem kunnugt er efstir liða í deildinni með 16 stig en Njarðvíkingar eru með 8 stig í 8.sæti.
Heil umferð fer fram í deildinni í kvöld og Keflvíkingar verða þar líka í eldlínunni. Þeir fara á útivöll og leika gegn ÍR-ingum, en Keflvíkingar eru fyrir leikinn með tveggja stiga forystu á ÍR en deildin hefur verið ákaflega jöfn þetta árið.
Staðan: