HSS
HSS

Íþróttir

Stórleikur í Njarðvík í kvöld
Föstudagur 6. nóvember 2009 kl. 10:33

Stórleikur í Njarðvík í kvöld


Ekki er ofsögum sagt að stórleikur verði í kvöld í Ljónagryfjunni þegar Njarðvík tekur á móti KR í 32 liða úrslitum Subwaybikars karla. Þarna mætast tvö af sterkustu liðum deildarinnar og verður því án efa um hörku viðureign að ræða.  Leikurinn hefst kl. 19:15.

Njarðvík hefur unnið alla sína leiki í fyrstu fimm umferðunum en KR hefur tapað einum. Sá leikur tapaðist einmitt gegn Njarðvík þegar liðin áttust við fyrir nokkrum dögum. Lokatölur í þeim leik urðu 76-68 fyrir Njarðvík. Svo er það stóra spurningin hvað gerist í kvöld.

--

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Mynd/www.karfan.is