HSS
HSS

Íþróttir

Mánudagur 27. október 2003 kl. 17:00

Stórleikur í kvöld!

Körfuknattleiksáhugamenn á Suðurnesjum búa sig nú undir fyrsta stórleik leiktíðarinnar þegar Njarðvík tekur á móti Keflavík í Intersport-deildinni í kvöld klukkan 19.15. Þjálfarar beggja liða búast sterklega við því að geta teflt fram sínu sterkasta liði í kvöld, en Keflavík var að fá Jón Nordal Hafsteinsson úr banni og Brandon Woudstra kemur aftur í lið Njarðvíkur eftir að hafa misst af síðasta leik vegna meiðsla.
Falur Harðarson segir að sínir menn séu mjög spenntir fyrir leiknum og bíði í ofvæni eftir því að klukkan slái sjö. Hann vonast til þess að liðið nái að spila sinn leik og detti sem minnst niður í slæma kafla eins og gerst hefur hjá þeim í síðustu leikjum. „Það er alltaf eins og menn séu að spila sinn síðasta körfuboltaleik í viðureignum þessa liða!“ sagði Falur og er fullviss að leikurinn í kvöld verði engin undantekning.
Friðrik hjá Njarðvík segir að sínir menn ætli sér ekkert annað en sigur. Keflavík hafi unnið síðustu 4-5 leiki og nú í kvöld skuli blaðinu snúið við! „Bæði lið eru vel mönnuð og spila skemmtilegan bolta, en það lið sem tapar í kvöld er komið 4 stigum á eftir Grindavík og það er farið að verða fullmikið bil“, segir Friðrik og lofar frábærum leik.

Stuðningsmenn liðanna eru eflaust þegar farin að hita upp fyrir átökin og er gamli rígurinn farinn að láta á sér kræla án nokkurs vafa. Stuðningur áhorfenda getur skipt sköpum í leik sem þessum og eru allir hvattir til að mæta og láta heyra vel í sér.
Bílakjarninn
Bílakjarninn