Mánudagur 23. júlí 2001 kl. 17:27
Stórleikur í Grindavík á eftir
Grindvíkingar taka á móti Fylki öðru sinni á nokkrum dögum í kvöld. Nú er eikið til undanúrslita í bikarnum.Grindvíkingar riðu ekki feitum hesti frá síðasta leik og þurftu að sækja knöttinn fjórum sinnum í eigið net. Vonandi hafa þeir leitað hófanna og mæta efldir til leiks í kvöld.