Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Íþróttir

Stórleikur í Grindavík
Fimmtudagur 2. ágúst 2012 kl. 11:06

Stórleikur í Grindavík

Undanúrslit bikarsins

Stærsti leikur sumarsins hjá Grindavík í fótboltanum er á Grindavíkurvelli í kvöld þegar bikarmeistarar KR koma í heimsókn í undanúrslitum bikarkeppninnar kl. 19:15. Þrátt fyrir að liðin séu á sitt hvorum endanum á töflunni í deildinni getur allt gerst í bikarnum eins og hefur margsannað sig í gegnum tíðina.

Grindavík hefur leikið alla leiki sína á útivelli í keppninni í ár fram að þessu og gengið vel og þetta því fyrsti heimaleikurinn hjá liðinu.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept
Bílakjarninn
Bílakjarninn