Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Stórleikur á Nettóvellinum í kvöld
Frá viðureign liðanna í fyrra.
Sunnudagur 18. maí 2014 kl. 09:49

Stórleikur á Nettóvellinum í kvöld

Allt sem þú þarft að vita fyrir Keflavík-KR

Topplið Pepsi-deildarinnar Keflavík, fær KR í heimsókn á Nettóvöllinn í kvöld. Keflvíkingar hafa sigrað alla leiki sína til þessa á Íslandsmótinu og eru með níu stig, á meðan KR hefur ekki byrjað vel og hefur liðið aðeins sótt þrjú stig í fyrstu þremur umferðunum og vermir 8. sæti deildarinnar.

Leikurinn var upphaflega heimaleikur KR en félögin víxluðu heimaleikjum sumarsins vegna þess að heimavöllur þeirra KR-inga er ekki tilbúinn. Leikir þessara liða eru yfirleitt fjörugir og dramatískir en heimasíða Keflvíkinga tók saman áhugaverðar staðreyndir varðandi fyrri viðureignir liðanna sem lesa má hér að neðan.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Keflavík og KR hafa leikið 95 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958. Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin, Keflavík hefur sigrað í 32 leikjum og KR í 34 en 29 leikjanna hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 128-148, KR í vil. Stærsti sigur Keflavíkur í innbyrðis leikjum liðanna var 5-1 sigur á Keflavíkurvelli árið 1974. Stærsti sigur KR-inga er hins vegar 8-1 árið 1960 og það er jafnframt mesti markaleikur þessara liða.

Fimm leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn KR í efstu deild; Hörður Sveinsson hefur skorað þrjú mörk, Jóhann B. Guðmundsson tvö og þeir Frans Elvarsson, Magnús Þórir Matthíasson og Magnús Þorsteinsson eitt mark hver. Það er hins vegar Guðmundur Steinarsson sem hefur gert flest mörk fyrir Keflavík gegn KR í efstu deild eða 12, næstir eru Jón Ólafur Jónsson og Steinar Jóhannsson með 8 mörk hvor.

Liðin hafa mæst 12 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1963 og síðast árið 2010. Keflavík hefur unnið 5 bikarleiki en KR 7. Markatalan í bikarnum er 20-26 fyrir KR. Magnús Þórir Matthíasson hefur skorað eitt bikarmark gegn KR. Ragnar Margeirsson hefur gert flest bikarmörk gegn KR en þau voru þrjú talsins.

Síðasta sumar mættust liðin að sjálfsögðu tvisvar í Pepsi-deildinni og þá vann KR báða leikina. Fyrri leiknum á Nettóvellinum lauk 0-2 en þar skoraði Baldur Sigurðsson bæði mörkin. Seinni leikurinn á KR-velli fór 0-3, þar gerði Kjartan Henry Finnbogason tvö mörk og Emil Atlason eitt.

Þó nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og KR í gegnum árin og ekki síður hafa félögin deilt sömu þjálfurunum. Guðni Kjartansson, Hólmbert Friðjónsson, Ian Ross, Pétur Pétursson og Willum Þór Þórsson hafa allir þjálfað bæði liðin. Upp úr 1990 var hálfgerð Keflavíkurnýlenda í Vesturbænum þegar Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson léku þar allir undir stjórn Guðna. Seinni árin hafa Haukur Ingi Guðnason, Stefán Gíslason og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Gunnleifur Gunnleifsson skipt milli þessara liða.  Tveir fyrrverandi leikmenn Keflvíkinga, Baldur Sigurðsson og Jónas Guðni Sævarsson, leika nú með KR.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og KR í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:

2013  Keflavík - KR  0-2  
2012  Keflavík - KR  1-1  Guðmundur Steinarsson
2011  Keflavík - KR  2-3  Frans Elvarsson og Magnús Þórir Matthíasson
2010  Keflavík - KR  0-1  
2009  Keflavík - KR  1-2  Guðmundur Steinarsson
2008  Keflavík - KR  4-2  Guðmundur Steinarsson 2, Hörður Sveinsson og Símun Samuelsen
2007  Keflavík - KR  1-1  Símun Samuelsen
2006  Keflavík - KR  3-0  Magnús Þorsteinsson, Daniel Severino og Símun Samuelsen
2005  Keflavík - KR  2-1  Guðmundur Steinarsson 2
2004  Keflavík - KR  3-1  Stefán Gíslason, Scott Ramsay og Hörður Sveinsson