Bygg
Bygg

Íþróttir

Föstudagur 5. janúar 2001 kl. 11:11

Stóri Stelpudagurinn hjá körfunni

Föstudagurinn 29. desember var merkilegur dagur hjá kvennfólkinu í körfunni hjá Keflavík. Þann dag var efnt til keppni þar sem allir kvennaflokkar öttu kappi sín á milli. Keflavík sendir 8 kvennalið til keppni í Íslandsmót og bikarkeppnir og kepptu þau öll þennan dag, auk þess sem fjölmennustu flokkunum var skipt í fleirri lið.
Dagurinn heppnaðist virkilega vel og var gaman að sjá hversu margar og duglegar stelpur eru að æfa körfubolta hjá okkar félagi. Stelpurnar gerðu meira en að spila bara því m.a. kepptu þær í "stinger" (skotkeppni) þar sem án efa var sett Íslandsmet í þátttakendafjölda því alls tóku 47 stelpur þátt og flestar þeirra Íslandsmeistarar. Sigurvegari varð María Anna Guðmundsdóttir.
Dagskránni í íþróttahúsinu lauk með sameiginlegri myndatöku af stelpunum og lokaleikurinn var svo á milli meistaraflokks og old-girls. Eins og sjá má á myndinni eru stelpurnar okkar á öllum aldri, en þær eiga það sameiginlegt að vera hörkuduglegar.
Um kvöldið var svo haldið uppá litlu jólin hjá yngri stelpuflokkunum þar sem sungið var í Karoke og horft á video auk þess sem viðurkenningar voru veittar fyrir frammistöðu dagsins og haustsins. Skipuleggjendur Stóra Stelpudagsins voru Kristinn Óskarsson, Kristín Blöndal og Margrét Sturlaugsdóttir öll þjálfarar hjá Keflavík.


Bílakjarninn
Bílakjarninn