Stórafmæli og stjórnarskipti hjá UMFG
Aðalfundur knattspyrnudeildar UMFG var haldinn fyrir helgi. Úr stjórn fóru þeir Þórhallur Benónýsson og Ingvar Guðjónsson og inn í stjórn komu Helgi Bogason og Eiríkur Leifsson. Ný inn í varastjórn kom Petra Rós Ólafsdóttir.
Undir liðnum önnur mál voru þeim Gunnlaugi Hreinssyni og Helga Bogasyni afhentar gjafir í tilefni stórafmælis þeirra, Gunnlaugur varð sextugur og Helgi fimmtugur. Meðfylgjandi mynd var tekið við það tilefni.