HSS sumarstörf 14-21 mars
HSS sumarstörf 14-21 mars

Íþróttir

  • Stjörnumenn föðmuðu Sigurberg í kaf
    Sigurbergur eftir leikinn. Myndir: Hilmar Bragi.
  • Stjörnumenn föðmuðu Sigurberg í kaf
Föstudagur 3. júlí 2015 kl. 10:38

Stjörnumenn föðmuðu Sigurberg í kaf

„Lífið er ekki bara fótbolti“

Sigurbergur Elísson, 23 ára liðsmaður Keflavíkur í fótbolta, hefur vakið mikla athygli fyrir að hafa hafa opnað sig um þunglyndi og kvíða í grein sem birtist á vefsíðunni fótbolti.net. Með greininni vildi hann miðla sögu sinni og reynslu til þeirra sem glíma við sama vandamál og hann glímdi við. „Það er mun algengara en við höldum. Þið eruð með heilann her af fólki sem er tilbúinn að hjálpa ykkur og munum að lífið er ekki bara fótbolti,“ segir Sigurbergur m.a. í greininni. Eftir viðureign Keflavíkur og Stjörnunnar í Pepsí-deildinni á mánudag vakti athygli fjöldi faðmlaga sem Sigurbergur fékk frá Stjörnumönnum. Sigurbergur hefur að margra mati verið besti maður Keflavíkurliðsins í sumar.

Sigurbergur var mjög efnilegur leikmaður hjá yngri flokkum Keflavíkur og fannst hann vera tilbúinn til þess að takast á við meistaraflokkinn aðeins 15 ára gamall. „Mér fannst hausinn vera tilbúinn í þessa áskorun því ég hafði heyrt frá því að ég byrjaði í 11 manna bolta að það yrði ekki spurning um hvort heldur hvenær ég færi út í atvinnumennsku. […] Ég trúði því enda var það draumur minn á þessum tíma að verða atvinnumaður. 

Public deli
Public deli

Faldi sig á bak við grímu

Á einni æfingu með U17 ára landsliðinu árið 2009 reif Sigurbergur liðþófa. „Þessi tæp þrjú ár voru skelfileg. Ég þurfti að fara í þrjár aðgerðir á hné og glímdi við mikið þunglyndi sem ég náði að fela mjög vel. Fjölskyldan mín hafði ekki hugmynd um líðan mína fyrr en ég sagði þeim það ári eftir að ég uppgötvaði það sjálfur. Ég hafði gefið atvinnuferilinn upp á bátinn, þrátt fyrir að vera aðeins 17-18 ára. Mín hugsun var sú að ég hafði brugðist öllum; sjálfum mér, foreldrum mínum, vinum og Keflavíkurliðinu. Það að fá vonina um að geta byrjað aftur á fullu í boltanum sem var svo brotin um leið og ég þurfti að fara aftur í aðgerð. Það var eins og að lenda undir valtara. Þetta hafði gífurleg áhrif á samband mitt við fjölskylduna og kærustuna mína á þeim tíma. Ég tók mjög oft þunglyndisköst og á tímapunkti var ég kominn það djúpt niður að ég var farinn að íhuga hluti sem ég átti alls ekkert að vera spá í. Ég faldi þetta mjög vel og setti á mig grímu í hvert skipti sem ég fór út. Það vissu þetta mjög fáir í kringum mig.“

„Hættu þessum aumingjaskap“

Á þessum tímapunkti langaði Sigurberg að hætta í fótbolta, íþróttinni sem hann lifði fyrir. „Kvíðinn og sú vanlíðan sem fylgdi mér hvert fótmál gerði það að verkum að ég fór að forðast fólk. Fólk sem sagði t.d. hluti eins og „Meiddur? Pff, þetta er allt í hausnum á þér“ eða „Hættu þessum aumingjaskap“ dró mig ennþá dýpra niður og ég fór þá að hugsa að þetta væri rétt hjá þeim,“ segir Sigurbergur sem taldi sig ekki þurfa hjálp. „En ég var blindur strákur sem þurfti á allri hjálp sem ég gæti fengið. Þegar ég komst loksins inn á völlinn fann ég að ég var ekki sá sami, sjálfstraustið var komið á botninn. Mér fannst ég hafa brugðist öllum í kringum mig og var skíthræddur. Þrátt fyrir að ég átti góðan leik að þá náði ég að brjóta mig samt sem áður niður. Taldi upp allt það neikvæða sem gerðist í leiknum og festist í því, í staðinn fyrir að horfa á það jákvæða.“ 

Þakklátur Mána og Kristjáni

Sigurbergur var mikið hjá sálfræðingum á þessum tíma og gekk það vel. Hann glímir þó enn við kvíðann og þunglyndið sem fylgdi öllu þessu ferli. Það tók bara nánast enginn eftir því vegna grímunnar sem hann bar á sér. „Samt var það svo ástæðulaust en þetta gerðist samt sem áður. Kvíðinn sem ég fékk var oft svo svakalega mikill að ég hreinlega ældi. Ég hugsaði um öll þau mistök sem ég gæti mögulega gert í leiknum, hvað ef og hvað ef? Það var ekki fyrr en Þorkell Máni Pétursson kom inn í þjálfarateymið að ég fór að lagast. Hann kenndi mér að lífið er ekki bara fótbolti, það er svo margt annað sem er mikilvægara. Máni Péturs og Kristján Guðmunds eiga stóran þátt í mínum bataferli og verð ég þeim ævinlega þakklátur.“ 

Í dag segist Sigurbergur vera annar maður; með frábæra kærustu, fjölskyldu og vini sem styðja við bakið á honum.