Stjörnuleikurinn í dag
Stjörnuleikur KKÍ fer fram í dag í Dalhúsum í Grafarvogi og hefst klukkan 14:00. Suðurnesjamenn eru áberandi í leiknum í dag en þjálfarar liðanna eru lifandi goðsagnir af svæðinu. Í þriggjastigakeppninni eru þeir Giordan Watson og J´Nathan Bullock frá Grindavík meðal þátttakenda og Ólafur Helgi Jónsson keppir fyrir hönd Njarðvíkinga. Svo er að sjálfsögðu troðslukeppni en ekki er ljóst hverjir taka þar þátt.
Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.
Liðin í dag eru er skipuð eftirtöldum leikmönnum:
Landsbyggðarliðið:
Giordan Watson • Grindavík
Magnús Þór Gunnarsson • Keflavík
Jón Ólafur Jónsson • Snæfell
J‘Nathan Bullock • Grindavík
Sigurður Gunnar Þorsteinsson • Grindavík
Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfari landsbyggðarliðsins hefur valið eftirfarandi leikmenn til viðbótar í lið sitt en Sigurður Ingimundarson stýrir liði landsbyggðarinnar í fjarveru Helga Jónasar
Darren Govens • Þór Þorlákshöfn
Guðmundur Jónsson • Þór Þorlákshöfn
Darri Hilmarsson • Þór Þorlákshöfn
Ólafur Ólafsson • Grindavík
Cameron Echols • Njarðvík
Elvar Friðriksson • Njarðvík
Svavar Birgisson • Tindastóll
Höfuðborgarsvæðið:
Justin Shouse • Stjarnan
Martin Hermannsson • KR
Marvin Valdimarsson • Stjarnan
Hreggviður Magnússon • KR
Nathan Walkup • Fjölnir
Teitur Örlygsson þjálfari höfuðborgarsvæðisins hefur valið eftirtalda leikmenn til viðbótar í lið sitt:
Keith Cothran • Stjarnan
Fannar Helgason • Stjarnan
Robert Jarvis • ÍR
Árni Ragnarsson • Fjölnir
Jón Sverrisson • Fjölnir
Finnur Atli Magnússon • KR
Hayward Fain • Haukar
Árni Ragnarsson er meiddur og hefur Teitur því valið Emil Þór Jóhannsson úr KR í hans stað.
Myndir úr safni: Ólafur Ólafsson úr Grindavík er líklegur til afreka í troðslukeppninni í ár og Magnús Gunnarsson gæti látið þriggjastigabombur falla í leiknum sem verður án efa hin mesta skemmtun.