Stjörnuleikir KKÍ á laugardag
Besta körfuknattleiksfólk landsins mun um helgina leiða saman hesta sína í árlegum stjörnuleik Körfuknattleikssambands Íslands. Að vanda er fjöldinn allur af Suðurnesjamönnum í liðunum en spilaðir verða tveir leikir, í karla- og kvennaflokki laugardaginn 13. janúar næstkomandi.
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkinga, mun vera í forsvari fyrir liðið í karlaleiknum skipað erlendum leikmönnum og Jón Eðvarð Halldórsson, þjálfari Keflavíkurkvenna, mun stjórna liði erlendra leikmanna í kvennaflokki.
Ágúst Björgvinsson, þjálfari Haukakvenna, og Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, munu stjórna hinum liðunum.
Valið í Stjörnuliðin fór þannig fram að fjölmiðlamenn völdu fyrstu 7 leikmennina í hvort lið en þjálfararnir völdu svo 5 leikmenn til viðbótar.
Leikir fara fram í DHL höllinni í Vesturbænum
Hjá konunum mun Iceland Express liðið keppa gegn Shell liðinu og hefst leikurinn klukkan 14:00. Liðin eru skipuð eftirfarandi leikmönnum:
Iceland Express liðið:
Helena Sverrisdóttir, Haukar
Tamara Bowie, UMFG
María Ben Erlingsdóttir, Keflavík
Latreece Bagley, Hamar
Pálína Gunnlaugsdóttir, Haukar
Kristrún Sigurjónsdóttir, Haukar
Unnur Tara Jónsdóttir, Haukar
Helga Jónasdóttir, ÍS
Telma Fjalarsdóttir, Breiðablik
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Haukar
Íris Sverrisdóttir, UMFG
Ingibjörg Skúladóttir, Breiðablik
Þjálfari: Ágúst Björgvinsson, Haukar
Shell liðið:
TaKesha Watson, Keflavík
Ifeoma Okonkwo, Haukar
Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík
Svava Stefánsdóttir, Keflavík
Margrét Kara Sturludóttir, Keflavík
Hildur Sigurðardóttir, UMFG
Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS
Jovana Lilja Stefánsdóttir, UMFG
Ragnheiður Theódórsdóttir, Breiðablik
Þórunn Bjarnadóttir, ÍS
Ingibjörg Jakobsdóttir, UMFG
Þjálfari: Jón Halldór Eðvaldsson, Keflavík
Hjá körlunum munu íslenskir leikmenn keppa gegn erlendum og hefst leikurinn klukkan 16:00. Liðin eru skipuð eftirfarandi leikmönnum:
Íslenska liðið
Fjölmiðlar völdu eftirtalda leikmenn:
Brenton Birmingham, Njarðvík
Friðrik Stefánsson, Njarðvík
Magnús Gunnarsson, Keflavík
Páll Axel Vilbergsson, Grindavík
Hlynur Bæringsson, Snæfell
Sigurður Þorvaldsson, Snæfell
Hörður Axel Vilhjálmsson, Fjölnir
Friðrik, Brenton og Hlynur gáfu ekki kost á sér.
Benedikt Guðmundsson þjálfari liðsins valdi því 8 leikmenn:
Hreggviður Magnússon, ÍR
Axel Kárason, Skallagrímur
Pálmi Sigurgeirsson, KR
Fannar Helgason, ÍR
Jóhann Ólafsson, Njarðvík
Pétur Már Sigurðsson, Skallagrímur
Brynjar Björnsson, KR
Egill Jónasson, Njarðvík
Erlenda liðið
Fjölmiðlar völdu eftirtalda leikmenn:
Jeb Ivey, Njarðvík
Steven Thomas, Grindavík
Damon Bailey, Þór Þorlákshöfn
George Byrd, Hamri /Selfoss
Darrel Flake, Skallagrím
Jovan Zdravevski, Skallagrím
Nemanja Sovic, Fjölni
Jovan og Flake gáfu ekki kost á sér.
Einar Árni þjálfari liðsins valdi því 7 leikmenn:
Lamar Karim, Tindastóli
Kevin Sowell, Þór Akureyri
Rob Hodgson, Þór Þorlákshöfn
Roni Leimu, Haukum
Justin Shouse, Snæfelli
Kareem Johnson, Fjölni
Nate Brown, ÍR