Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Íþróttir

Stjörnuhrap í Garðabænum
Það var lítið um fögnuð hjá Keflvíkingum.
Laugardagur 30. janúar 2021 kl. 09:10

Stjörnuhrap í Garðabænum

Það var sannkallað stjörnuhrap hjá Keflvíkingum þegar þeir heimsóttu Stjörnumenn heim í Domino’s deild karla í körfubolta í gær. Fyrsta tap Keflavíkur varð staðreynd en þeir voru hreinlega kjöldregnir í Garðabænum og töpuðu með 40 stiga mun.

Stjörnumenn mættu af miklum krafti og léku frábæran körfubolta í byrjun og í raun allan tímann á meðan efsta lið deildarinnar sem hafði ekki tapað leik, lék slaka vörn og leikmenn hittu ekki ofan í körfuna nánast sama hvað þeir reyndu. Meira að segja besti maður liðsins, Dominykas Milka var ekki nema skugginn af sjálfum sér en margir telja hann vera besta mann deildarinnar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Keflvíkingar voru 36 stigum undir í hálfleik og voru aðeins skárri í þeim síðari þegar Stjarnan jók forskotið aðeins um fjögur stig. Engu að síður tapurleg frammistaða og 40 stiga tap, 115-75.

Stjarnan-Keflavík 115-75 (31-9, 35-21, 27-26, 22-19)

Stjarnan: Austin James Brodeur 19/8 fráköst, Mirza Sarajlija 18, Ægir Þór Steinarsson 17/10 fráköst/10 stoðsendingar, Alexander Lindqvist 15/4 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 10, Gunnar Ólafsson 9, Hugi Hallgrímsson 9/5 fráköst, Dúi Þór Jónsson 6/8 stoðsendingar, Hlynur Elías Bæringsson 5/4 fráköst, Orri Gunnarsson 5, Hilmir Hallgrímsson 2, Aron Kristian Jónasson 0.

Keflavík: Deane Williams 17/7 fráköst, Calvin Burks Jr. 16/4 fráköst, Dominykas Milka 10/4 fráköst, Þröstur Leó Jóhannsson 8/4 fráköst, Almar Stefán Guðbrandsson 6, Hörður Axel Vilhjálmsson 5, Ágúst Orrason 5, Arnór Sveinsson 3, Magnús Pétursson 3, Davíð Alexander H. Magnússon 2, Reggie Dupree 0, Valur Orri Valsson 0.