Steven Gerrard er fyrirmyndin
Fótboltansillingur vikunnar: Tómas Freyr Jónsson
Fótboltasnillingur vikunnar er Garðbúinn Tómas Freyr Jónsson. Tómas er 12 ára og spilar með 5. flokki Reynis/Víðis. Tómas stefnir á að komast sem lengst í boltanum en atvinnumennskan heillar sérstaklega. Liverpool er hans lið á Englandi og Steven Gerrard er fyrirmyndin í boltanum.
Hvað hefur þú æft fótbolta lengi? 8 ár.
Hvaða stöðu spilar þú? Ég er miðjumaður.
Hvert er markmið þitt í fótbolta? Komast eins langt og ég get. Vonandi verða atvinnumaður.
Hversu oft æfir þú á viku? Fimm sinnum í viku.
Hver er þinn eftirlætis fótboltamaður/kona? Lionel Messi hjá Barcelona.
Áttu þér einhverja fyrirmynd í boltanum? Steven Gerrard er fyrirmyndin.
Hefurðu farið á fótboltaleik erlendis? Já. Liverpool - QPR á Anfield á síðustu leiktíð.
Hversu oft getur þú haldið á lofti? 34 sinnum.
Hvaða erlenda félag heldur þú upp á? Liverpool.