Steinunn gamla Íslandsmeistari
Blaklið Steinunnar gömlu úr Keflavík gerði góða ferð á Öldungamót Blaksambands Íslands sem haldið var í Fjallabyggð og Dalvík dagana 28. til 30. apríl síðastliðinn. Þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í 4. deild með glæsibrag, unnu alla sína leiki og töpuðu einungis þremur hrinum en unnu 12. Steinunn gamla mun því spila í þriðju deild á næsta móti og þokast hægt og bítandi í hóp þeirra bestu. Þessi árangur er stórglæsilegur og sérlega athyglisverður fyrir þær sakir að flestir leikmenn í liðinu hafa ekki neina reynslu af blaki í keppni á vegum Blaksambandsins, hvorki í yngri flokkum né meistaraflokki, á meðan önnur lið eru að mestu skipuð mönnum með slíka reynslu. Steinunn gamla hefur metnað til að gera enn betur og hefur sett sér markmið að halda sér meðal þeirra bestu þó svo að fyrsta deildin sé líklegast of stór biti en það er þó aldrei að vita hvað gerist ef menn æfa vel.
Lið Steinunnar er skipað eftirfarandi leikmönnum: Jóhann, Sveinn, Skúli, Hjörtur, Einar, Brynjar og Kristinn.
Steinunn gamla vill þakka Birni Herbert Guðbjörnssyni og Plastgerð Suðurnesja ehf. kærlega fyrir veittan stuðning við kaup á búningum.