Steindór fertugur
Steindór Gunnarsson, sundþjálfari og íþróttakennari, varð fertugur í gær og af því tilefni komu stjórnir sunddeildanna í Reykjanesbæ færandi hendi og gáfu kappanum listaverk, köku og hálsmen gert úr 40 lakkrísbitum.
Steindór vonast örugglega eftir því að sundfólk hans í ÍRB færi honum veglega afmælisgjöf um helgina þegar ÍRB keppir í Gullmóti KR í innilauginni í Laugardal.