HSS
HSS

Íþróttir

Steinar tekur Víði
Fimmtudagur 26. október 2006 kl. 13:18

Steinar tekur Víði

Knattspyrnudeild Víðis í Garði hefur ráðið Steinar Örn Ingimundarson sem þjálfara hjá meistaraflokki félagsins. Steinar er Víðismönnum að góðu kunnur en hann lék með liðinu 1990-91 og aftur árið 1996 en þá var hann einnig aðstoðarþjálfari hjá Víði.

 

,,Ég sé ákveðin tækifæri í Garðinum en deildin þar hefur verið í smá lægð að undanförnu og mig langaði að taka þátt í því að rífa starfið upp,” sagði Steinar í samtali við Víkurfréttir. Steinar er margreyndur sem leikmaður og þjálfari en hann lék m.a. með Leiftri á Ólafsfirði undir stjórn bróður síns Óskars Ingimundarsonar og þá lék Steinar á tíma með KR og svo vitaskuld Víði.

 

,,Við verðum að styrkja hópinn hjá Víði og þá er sama hvort liðið bæti við sig innlendum eða erlendum leikmönnum, við erum ekkert að flýta okkur í leikmannamálunum og förum okkur hægt þar í sakirnar,” sagði Steinar en undirbúningstímabilið hjá Víði hefst á mánudag.

 

Steinar Ingimundarson þjálfaði Fjölni í Reykjavík árin 2001-2004 og fór þá með liðið upp úr 3. deild í þá fyrstu og binda Víðismenn miklar vonir við tilkomu hans í Garðinn. Í fréttatilkynningu frá Víði segir að Steinar sé að mati félagsins sá þjálfari sem liðið þurfi á að halda á þessum tímapunkti.

Bílakjarninn
Bílakjarninn