Bygg
Bygg

Íþróttir

Stefan skoraði gegn Skotum
Miðvikudagur 24. febrúar 2016 kl. 09:23

Stefan skoraði gegn Skotum

Keflvíkingurinn Stefan Alexander Ljubicic skoraði eina mark Íslendinga sem töpuðu gegn Skotum 2-1 fyrir Skotum í vináttulandsleik U17 landsliða sem fram fór í Skotlandi í gær. Eins og við greindum frá í gær var hinn 16 ára gamli Stefan að skrifa undir samning við 1. deildarlið Brighton í Englandi.

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en Skotar komust yfir á 51. mínútu. Markið kom gegn gangi leiksins en íslenska liðið var líklegra til að komast yfir þegar markið kom. Skotarnir sóttu í sig veðrið og voru líklegri til að bæta við marki eftir en það var samt íslenska liðið sem jafnaði metin. Stefán Alexander Ljubicic skoraði mark Íslands á 77. mínútu og flest stefndi í jafntefli í leiknum. Það voru samt Skotar sem áttu seinasta orðið en þeir skoruðu sigurmarkið á 80. mínútu. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn