Stefán og Kekic undir smásjá landsliðsþjálfara
Knattspyrnumennirnir Stefán Gíslason frá Keflavík og Grindvíkingurinn Sinisa Valdimar Kekic eru undir smásjá landsliðsþjálfaranna Ásgeirs Sigurvinssonar og Loga Ólafssonar.
Stefán hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu í fyrstu tveimur leikjum Íslandsmótsins og Kekic, sem hefur verið í fremstu röð í úrvalsdeildinni í allmörg ár, fékk nýlega íslenskan ríkisborgararétt.
Tvímenningarnir voru þó ekki valdir í 20 manna hóp Íslands sem leikur gegn Englandi og Japan, en Logi segir, i Morgunblaðinu í dag að ekkert sé útilokað með næstu verkefni. „Stefán hefur leikið mjög vel og við munum skoða hann áfram, ásamt fleirum. Við Ásgeir höfum skoðað leikina á Íslandsmótinu mjög náið og þótt aðeins tveir leikmenn íslenskra liða séu í hópnum að þessu sinni eru allar dyr opnar fyrir þá sem standa sig vel.“
Þess má geta að í 20 manna hópnum eru tveir fyrrum leikmenn Keflavíkur, þeir Hjálmar Jónsson og Jóhann B. Guðmundsson.
VF-mynd/Hilmar Bragi :Stefán í leik gegn KR