Stefán Gísla seldur til Lyn
Stefán Gíslason, miðvallarleikmaður hefur verið seldur til norska úrvalsdeildarliðsins Lyn í Osló. Rúnar Arnarson, formaður knattspyrnudeildarinnar, staðfesti þetta í samtali við Víkurfréttir og sagði Keflvíkinga hafa fengið ásættanlegt verð fyrir leikmanninn.
"Það er klárt mál að við þurfum nú að herða róðurinn í að fá nýja leikmenn.Við munum samt gefa okkur tíma til að finna réttu mennina. Þetta er mikil blóðtaka en við verðum að bíta á jaxlinn og stoppa í götin."