Bygg
Bygg

Íþróttir

Stærsta Samkaupsmótið um helgina
Fimmtudagur 9. mars 2006 kl. 16:34

Stærsta Samkaupsmótið um helgina

Á milli 950 og 1000 körfuboltakrakkar munu taka þátt í Samkaupsmótinu um helgina og mótið því orðið stærsta Samkaupsmótið til þessa.

Liðum fjölgaði um 21 í ár en í fyrra voru þau 124 en þau verða 145 að þessu sinni og því verða spilaðir 359 leikir á 12 völlum.

Dagskráin verður ekki af verri endanum hjá krökkunum í mótinu sem fá frítt í sund í Keflavík og Njarðvík um helgina, fjölmargar bíóferðir verða í boði og skemmtileg kvöldvaka á Laugardagskvöldinu svo eitthvað sé nefnt. Það verður því nóg um að vera í íþróttahúsum Reykjanesbæjar um helgina.

Bílakjarninn
Bílakjarninn