Stærsta fjallahjólakeppni ársins haldin í 22. skiptið
- Bláa Lóns þrautin eða Blue Lagoon Challenge fer fram á morgun, laugardag, 700 keppendur skráðir til leiks sem hjóla 60 kílómetra leið
Bláa Lóns þrautin eða Blue Lagoon Challenge, stærsta fjallahjólakeppni ársins, fer fram í 22. skiptið á morgun, laugardaginn 9. júní. 700 manns eru skráðir í keppnina en þeir munu hjóla 60 kílómetra leið, frá Völlunum í Hafnarfirði, um ægifagurt Reykjanesið, og að bílastæðum Bláa Lónsins í Svartsengi í Grindavík.
Búast má við æsispennandi keppni í ár en Ingvari Ómarssyni, Íslandsmeistara í fjallahjólreiðum, er spáð sigri. Ingvar hefur aldrei unnið Blue Lagoon Challenge, þrátt fyrir að hafa keppt í fjölda ára og ávallt verið í toppbaráttunni. Búast má við að Ingvar muni fá harða keppni frá Louis Wolf sem vann keppnina í fyrra en þá kom hann í mark nokkrum sekúndubrotum á undan Hafsteini Ægi Geirssyni, sem er margfaldur Blue Lagoon Challenge meistari karla.
Einnig má búast við harðri samkeppni í kvennaflokki en Anna Kristín Sigurpálsdóttir sigraði í fyrra og var rétt rúma 2 tíma að hjóla kílómetrana sextíu. Auk Önnu eru margar af bestu hjólakonum landsins skráðar til leiks sem og Vilborg Anna Gissurardóttir, pólfari.
Bláa Lónið styrkir þáttöku Hjólakrafts og rennur allur ágóði keppninnar til uppbyggingar á starfi Hjólreiðafélags Reykjavíkur.
Keppnin er ræst kl. 19:40 frá Ásvallalaug í Hafnarfirði. Hópurinn hjólar saman undir lögreglufylgd um 3 km leið suður að hesthúsunum þar sem tímatakan hefst.