Spútniklið GS í sveitakeppninni
Golfklúbbur Suðurnesja kom skemmtilega á óvart í sveitakeppninni sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru um síðustu helgi. Golfklúbburinn Kjölur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í keppninni annað árið í röð með sigri á GS í úrslitaleik 3,5-1,5.
GS hefur ekki átt sjö dagana sæla í þessari keppni síðustu ár en Örn Ævar Hjartarson, kylfingur hjá GS, sagði fyrir keppnina að GS stefndi að því að halda sínu sæti í 1. deild og þeir gerðu gott betur en það. GS voru spútnikliðið í keppninni og réðust úrslitin í leik Arnars Ævar og Sigurpáls Geirs Sveinssonar á 16. flötinni á sunnudag er Sigurpáll tryggði þriðja vinninginn gegn Erni og lauk leik þeirra á milli 3/2.
Úrslitaleikurinn:
GKJ – GS 3,5:1,5
Fjórmenningur:
Arnar Sigurbjörnsson/Kristján Þór Einarsson - Ólafur Jóhannesson/ Guðmundur R. Hallgrímsson 0,5:0,5 (hættu þegar sigur GKJ var í höfn)
Tvímenningur:
Heiðar Davíð Bragason vann Sigurð Jónsson 6/5
Sigurpáll Geir Sveinsson vann Örn Ævar Hjartarson 3/2
Magnús Lárusson vann Gunnar Jóhannsson 6/5
Davíð Már Vilhjálmsson tapaði fyrir Davíð Jónssyni 2/3
Mynd/Kylfingur.is: GS taka við silfurverðlaununum frá Gunnari Þórarinssyni, formanni GS.