Sportspjall: Logi Gunnarsson
Logi Gunnarsson, atvinnumaður í körfuknattleik, átti afar gott leiktímabil með liði sýnu Baereuth í 2. deildinni í Þýskalandi hann var einn af allra bestu mönnum deildarinnar og var valinn í úrvalslið erlendra leikmanna að tímabili loknu. Framtíðin hjá honum er enn óráðin en hann útilokar ekki að verða áfram í Þýskalandi.Víkurfréttir höfðu samband við þennan snjalla leikmann og spurðu hann nokkurra spurninga.
1. Ertu sáttur við nýliðið tímabil með Bayreuth?
Ég er ekki sáttur með það að enda ekki ofar en það var markmiðið í byrjun tímabilsins að vera á toppnum , það voru mikil meiðsli sem settu strik í reikninginn.
Varðandi mig er ég mjög sáttur með mína frammistöðu, aðalmálið var fyrir þetta tímabil var að fara á stað þar sem ég gæti spilað og sýnt getu mína.
2. Hvað er minnisstæðast við tímabilið?
Held að það hafi verið leikur gegn B.Gussbach sem við reyndum að fresta vegna þess að við höfðum aðeins 6 leikmenn og engan stóran leikmann. Þetta lið var búið að fá frestun á þessum leik vikuna á undan vegna svipaðra aðstæðna. Þeir neituðu um frestun og við urðum að spila, við unnum í framlengingu og ég endaði með 43 stig eftir að hafa verið í villuvandræðum í fyrri hálfleik og aðeins skorað 3 stig í hálfleiknum.
3. Gerir þú ráð fyrir að vera áfram í Þýskalandi á næstu leiktíð?
Það má alveg vera, ég er opin fyrir öllu þannig að önnur lönd gætu komið til greina
4. Hvernig líst þér á möguleika Íslenska landsliðsins í Evrópukeppninni í september?
Mér lýst mjög vel á þetta verkefni hjá okkur, við munum mæta sterkum þjóðum í riðlinum okkar en við erum með gott lið og erum til alls líklegir. Við erum allir frekar ungir en samt höfum við reynslu að spila á þessu stigi.