Bygg
Bygg

Íþróttir

SpKef aðalstyrktaraðili Fimleikadeildar Keflavíkur
Miðvikudagur 2. febrúar 2011 kl. 15:15

SpKef aðalstyrktaraðili Fimleikadeildar Keflavíkur

Sparisjóður Keflavíkur er nú aðalstyrktaraðili Fimleikadeildar Keflavíkur. Einar Hannesson, sparisjóðsstjóri og Helga Hildur Snorradóttir, formaður Fimleikadeildar Keflavíkur undirrituðu samninginn í Íþróttaakademíunni og er samningurinn til tveggja ára.

„Undanfarin misseri hefur Sparisjóður Keflavíkur verið aðalstyrktaraðili Fimleikadeildarinnar og því mjög ánægjulegt að hann sjái sér fært um að styrkja deildina á ný,“ sagði Helga.

VF-Myndir/siggijóns

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Einar Hannesson og Helga Hildur Snorradóttir handsala samninginn að undirritun lokinni.