Spennusigur Grindvíkinga
Jeremiah Johnson og Þorleifur Ólafsson fóru fyrir Grindvíkingum er bikarmeistararnir sigruðu topplið Njarðvíkur í framlengdum leik í Röstinni í gær. Jeremiah gerði 44 stig í leiknum og Þorleifur 30 en sá síðarnefndi fór á kostum í seinni hálfleik og í framlengingunni.
Njarðvíkingar komu ákveðnari til leiks og höfðu yfir að loknum 1. leikhluta 25 – 26 en 2. leikhluti var eign Grindvíkinga sem settu upp sýningu og breyttu stöðunni í 60 – 47 sér í vil fyrir hálfleik.
Fyrstu stig seinni hálfleiksins gerðu Bikarmeistararnir og staðan 63 – 47 en þá hrukku Njarðvíkingar í gang og minnkuðu muninn í 5 stig þegar þriðja leikhluta lauk 79 – 72. Fjórði og síðasti leikhlutinn var svo æsispennandi og þegar um 20 sekúndur voru til leiksloka var staðan 100 – 97 Grindavík í vil. Jeb Ivey jafnaði þá metin í 100 – 100 með ævintýralegu þriggja stiga skoti og framlengja varð leikinn þar sem Grindvíkingar náðu ekki að nýta sér þær fáu sekúndur sem lifðu af venjulegum leiktíma.Í framlengingunni ætlaði allt um koll að keyra en Páll Kristinsson, Grindavík, og Guðmundur Jónsson, Njarðvík, léku ekki í framlengingunni enda báðir komnir með 5 villur. Jóhann Árni Ólafsson setti tóninn fyrir Njarðvíkinga í framlengingunni en toppliðið mátti sín lítils gegn baráttu Grindavíkur þar sem Þorleifur Ólafsson fór fremstur í flokki með þrjár þriggja stiga körfur í framlengingunni. Svo fór að Grindavík hafði betur 116 – 112 en fyrri viðureign liðanna sigruðu Grindvíkingar í desember, einmitt í framlengdum leik.
Hjá Njarðvík var Jeb Ivey með 30 stig og Brenton Birmingham gerði 23. Jóhann Árni Ólafsson gerði 18 stig og Páll Axel Vilbergsson var með 22 stig hjá Grindavík.
Tölfræði leiksins
Sjá myndasafn frá Keflavík – Fjölnir og Grindavík - Njarðvík
VF – myndir/ Hilmar Bragi og Jón Björn
