Spenna í flestum flokkum á meistaramóti Golfklúbbs Suðurnesja
„Svona er golfið. Gæfa snýst við á örskotsstundu. Ég komst í svaka gír á flötunum á síðustu níu holunum og púttin fóru að detta en þetta var mjög spennandi og Siggi (Sigurður Jónsson) var ekki langt frá því að jafna með síðasta pútti mótsins,“ sagði Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, klúbbmeistari Golfklúbbs Suðurnesja eftir sigurinn á meistarmótinu í Leirunni í gær.
Guðmundur, Sigurður Jónsson og Davíð Jónsson börðust hart um sigurinn. Davíð var með forystu fram á 67. holu af 72 en náði ekki að klára dæmið. Lenti í vandræðum nokkrum sinnum á lokahringnum en náði þó að setja niður tvö góð pútt á lokaholunum til að halda jöfnu við Guðmundur Rúnar fyrir síðustu holuna. Davíð urðu á mistök þar í tvígang sem gerði titilvonir hans að engu en Sigurður sem gat jafnað á síðustu flötinni við Guðmund Rúnar en missti 3 metra pútt fyrir fugli.
Karen Guðnadóttir fékk enga keppni í meistaraflokki kvenna en í nær öllum öðrum flokkum réðust úrslit ekki fyrr en á lokadegi en um 160 manns tóku þátt í mótinu.
Úrslit í öllum flokkum:
1 Guðmundur Rúnar Hallgrímsson 73 71 72 70 286
2 Sigurður Jónsson 71 73 70 73 287
3 Davíð Jónsson 67 74 71 76 288
Meistaraflokkur Kvenna
1 Karen Guðnadóttir 89 83 77 77 326
1.flokkur karla
1 Óskar Halldórsson 77 72 71 80 - 300
2 Guðni Oddur Jónsson 75 76 74 77 - 302
3 Guðni Friðrik Oddsson 79 72 77 76 - 304
2.flokkur karla
1 Guðmundur Jens Guðmundsson 82 82 84 79 - 327
2 Þorlákur S Helgi Ásbjörnsson 90 81 81 76 - 328
3 Björn Oddgeirsson 84 85 82 80 - 331
3.flokkur Karla
1 Hallgrímur I Sigurðsson 88 85 85 86 - 344
2 Snorri Jóhannesson 89 87 92 88 - 356
3 Guðmundur J Hjaltested 88 86 95 90 - 359
4. flokkur karla
1 Sigurður H Haraldsson 94 94 97 96 - 381
2 Guðfinnur S Jóhannsson 92 98 97 95 - 382
3 Kristinn Arnar Sigurðsson 96 94 100 94 - 384
5. flokkur karla
1 Guðni Hörðdal Jónasson 102 101 93 100 - 396
2 Árni Gunnlaugsson 103 100 103 102 - 408
3 Stefán Már Jónasson 110 104 100 96 - 410
Strákar 13 ára yngri
1 Róbert Smári Jónsson 81 81 85 - 247
2 Haukur Ingi Júlíusson 90 87 77 - 254
3 Birkir Orri Viðarsson 89 92 85 - 266
Stelpur 13 ára yngri
1 Laufey Jóna Jónsdóttir 105 99 100 - 304
2 Zuzanna Korpak 100 110 103 - 313
3 Elísabet Sara Árnadóttir 115 108 107 - 330
Drengir 14-15 ára
1 Grétar Ágúst Agnarsson 90 93 95 97 - 375
2 Sigurþór Ingi Sigurþórsson 98 101 99 86 - 384
3 Árni Vigfús Karlsson 127 114 110 106 - 457
Karlar 70 ára eldri
1 Sigurður Albertsson 77 77 78 - 232
2 Jón Ólafur Jónsson 88 82 84 - 254
3 Guðmundur Rúnar Hallgrímsson 86 89 87 - 262
Karlar 55 ára og eldri
1 Elías Kristjánsson 77 76 78 81 312
2 Júlíus Jón Jónsson 86 84 81 84 335
3 Sæmundur Hinriksson 91 81 78 86 336
Konur 65 ára eldri
1 Sigurbjörg Jóna Gunnarsdóttir 103 99 102 - 304
2 Elsa Lilja Eyjólfsdóttir 110 102 101 - 313
3 Valdís K M Valgeirsdóttir 112 100 104 - 316
1. flokkur kvenna
1 Rakel Guðnadóttir 93 86 82 88 - 349
2 Íris Dögg Steinsdóttir 92 89 91 86 - 358
3 Ólafía Sigurbergsdóttir 94 96 84 90 - 364
2. flokkur kvenna
1 Karitas Sigurvinsdóttir 95 99 99 102 - 395
2 Þóranna Andrésdóttir 95 98 99 108 - 400
3 Sesselja Erla Árnadóttir 105 110 109 102 - 426
3. flokkur kvenna
1 Björk Guðjónsdóttir 130 118 126 123 - 497
Verðlaunahafar í meistaramóti GS 2011.
Rúmlega hundrað manns mættu í lokahófið í golfskálanum í Leiru.