Sparisjóðsvöllurinn í Sandgerði
Fjölmennur stofnfundur stuðningsmannafélags knattspyrnudeildar Reynis í Sandgerði var haldinn í fundarsal félagsins 24. mars s.l. Sigursveinn Bjarni Jónsson formaður ksd. Reynis setti fundinn og síðan tók Júlíus J. Jónsson við fundarstjórn, en Júlíus mun vera sá leikmaður félagsins sem spilað hefur flesta leiki fyrir félagið frá upphafi. Að lokinni stofnun félagsins sem fékk nafnið „Áfram Reynir“, var kjörin stjórn sem í sitja þeir Anton Már Ólafsson, Jón Bjarni Sigursveinsson og Sigurpáll Árnason. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Reynismönnum.
Á fundinum voru kynntir styrktar- og samstarfssamningar ksd. Reynis við Sandgerðisbæ, Bílahornið hjá Sissa, VÍS og Sparisjóðinn í Keflavík, sem er aðalstyrktaraðili félagsins. Ýmsar nýungar sáu dagsins ljós í þessum samningum m.a. var samið við Sparisjóðinn um að knattspyrnuvöllur Reynis fái nafnið „Sparisjóðsvöllurinn“. Þetta mun vera í fyrsta skipti á Íslandi sem samið er um að knattspyrnuvöllur beri nafn fyrirtækis.
Jónas Þórhallsson úr Grindavík var leynigestur á fundinum, en hann er fæddur og uppalinn í Sandgerði og lék knattspyrnu með Reyni í mörg ár. Jónas hefur verið knattspyrnunni í Grindavík ómetanleg stoð og stytta eins og mörgum er kunnugt og sagði hann margar skemmtilegar sögur úr starfi sínu þar. Jónas sagði að þrátt fyrir allt væri Reynishjartað alltaf á sínum stað.
Pétur Brynjarsson fyrrverandi leikmaður með Reyni til margra ára sagði frá því á fundinum að hann hafi haldið til haga gömlum fundargerðarbókum Ksf. Reynis og fundargerðarbók Ungmennafélags Miðnesinga, sem var lagt af þegar Ksf. Reynir var stofnað árið 1935. Pétur sagðist ætla að afhenda félaginu þessar bækur innan tíðar.
Sigursveinn Bjarni Jónsson skýrði frá starfseminni framundan, sýndi aðstöðu félagsins og kynnti nýja leikmenn. Stuðningsmannafélagið Áfram Reynir bauð upp á veitingar í lok fundar.
Knattspyrnufélagið Reynir í Sandgerði hefur átt mikilli velgengni að fagna s.l. tvö ár, þar sem meistaraflokkur félagsins í knattspyrnu hefur unnið sig upp úr 3. deild árið 2005 og upp úr 2. deild árið 2006. Sú staðreynd blasir því við að félagið spilar í 1. deild á þessu ári og þarf á mjög öflugum stuðningi að halda. Starfsemi knattspyrnudeildar Reynis er mjög umfangsmikil og kostnaðarsöm þar sem deildin annast rekstur allra flokka karla og kvenna, yngri sem eldri, fyrir félagið.