Spá Keflavík Íslandsmeistaratitli í kvennaboltanum
Keflvíkingum er spáð öðru sæti á Íslandsmótinu í körfuknattleik karla samkvæmt spá fyrirliða og þjálfara deildanna. Það er einu sæti ofar en spá boltaspekúlanta körfuboltavefsins Karfan.is sagði til um. Liðin í Iceland Express-deildum karla og kvenna voru kynnt til leiks í dag á blaðamannafundi KKÍ vegna komandi keppnistímabils.
Ef spáin rætist verða KR-ingar Íslandsmeistarar en núverandi Íslandsmeisturum Snæfells er spáð þriðja sæti. Grindvíkingum er spáð fimmta sæti og Njarðvíkingum sjötta.
Lið Keflavíkur verður Íslandsmeistari í kvennadeildinni ef spáin gengur eftir. Grindavík er spáð sjötta sæti og Njarðvík sjöunda.